Fara í efni

Almennar fréttir

29. sep. 2025

Halla Björg sú fyrsta til að ná ISU-dómararéttindum Alþjóðaskautasambandsins

Halla Björg Sigurþórsdóttir, skautadómari, stóðst um helgina próf Alþjóðaskautasambandsins til ISU-dómararéttinda sem veitir henni meðal annars réttindi til þess að dæma á Evrópumeistara- og heimsmeistaramótum, sem og á Ólympíuleikum. Halla Björg er fyrsti Íslendingurinn sem nær þessum réttindum en hún hafði áður tryggt sér alþjóðleg réttindi dómara og alþjóðleg réttindi tæknistjórnanda (e. Technical Controller, TC).
Almennar fréttir
29. sep. 2025

Vel heppnuð afmælishátíð í Elliðaárdal

Íþróttavika Evrópu, European Week of Sport, stendur nú yfir í yfir 40 Evrópulöndum. Íþróttavikan stendur ávallt yfir frá 23. - 30. september og á laugardag var sérstakur afmælisviðburður haldinn í Elliðaárdal í tilefni 10 ára afmælis Íþróttaviku Evrópu.
Almennar fréttir
23. sep. 2025

Ólympíusamhjálpin styrkir íþróttafólk vegna undirbúnings fyrir Los Angeles 2028

Í dag voru undirritaðir samningar vegna einstaklingsstyrkja frá Ólympíusamhjálpinni fyrir Ólympíuleikana í Los Angeles árið 2028. Níu íþróttamenn frá sjö sérsamböndum ÍSÍ fá styrk frá Ólympíusamhjálpinni að þessu sinni.
Almennar fréttir
23. sep. 2025

Íþróttavika Evrópu er hafin

Íþróttavika Evrópu, eða European Week of Sport, #BeActive, er nú gengin í garð og í ár fagnar átakið 10 ára afmæli
Almennar fréttir
19. sep. 2025

Virkniþing haldið í Ráðhúsi Reykjavíkur

Í dag fór fram Virkniþing í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Þingið er viðburður í Íþróttaviku Evrópu #BeActive.
Almennar fréttir
18. sep. 2025

„Við erum öll með sama markmið; að íþróttafólkið fái að blómstra"

Þriðjudaginn 16. september funduðu Kristín Birna Ólafsdóttir, afreksstjóri í Afreksmiðstöð Íslands, Patrekur Jóhannesson, sérfræðingur hjá Afreksmiðstöð Íslands og Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, með Skólameistarafélagi Íslands en félagið er skipað skólastjórnendum framhaldsskólanna.
Almennar fréttir
17. sep. 2025

Fimm fjölmennustu íþróttagreinarnar bæta við sig

ÍSÍ birtir árlega tölfræði sem unnin er upp úr starfsskýrslunum og sýnir samtölur um ofangreinda þætti, þ.e. umfang og samsetningu hreyfingarinnar. Það er á ábyrgð félaganna að skila inn starfsskýrslu svo að rétt mynd fáist af fjölda iðkana í íþróttahreyfingunni. Nú hafa verið birtar tölfræðiupplýsingar, unnar upp úr síðustu starfsskýrslum, um starfsárið 2024.
Almennar fréttir
16. sep. 2025

Afmælishátíð Íþróttaviku Evrópu í Elliðaárdal

Íþróttavika Evrópu fagnar 10 ára afmæli í ár og af því tilefni verður sannkölluð afmælishátíð í Elliðaárstöð í Elliðaárdal laugardaginn 27. september.
Almennar fréttir
15. sep. 2025

Ólafur Þór sæmdur Silfurmerki ÍSÍ

Ólafur Þór Ólafsson, fráfrandi formaður Knattspyrnufélagsins Reynis í Sandgerði, var sæmdur Silfurmerki ÍSÍ á 90 ára afmælishátið Reynis.
Almennar fréttir