2. jún. 2025
Fráfarandi forseti IOC á Smáþjóðaleikunum
Thomas Bach, fráfarandi forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC), var gestur Smáþjóðaleikanna í Andorra. Hann ávarpaði á setningarhátíð leikanna og sagði meðal annars að í íþróttum væru allir jafnir. Ekki skipti máli hvaðan þátttakendur kæmu, hvort það væri frá stóru eða smáu landi, heldur skipti máli að hafa ástríðu fyrir íþróttum.
Almennar fréttir








