Fara í efni

Almennar fréttir

3. júl. 2025

„Stolt og gleði að fylgja þeim eftir”

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta hóf í gær leik á Evrópumótinu í Sviss. Leikur Íslands og Finnlands var fyrsti leikur mótsins en honum lauk með 1-0 sigri Finnlands.
Almennar fréttir
1. júl. 2025

18,3 milljónum króna úthlutað vegna kostnaðarþátttöku ungmenna í landsliðsstarfi

16 sérsambönd ÍSÍ hlutu styrki fyrir landsliðsverkefni ungmenna á þeirra vegum á fyrsta ársþriðjungi og samanlagður fjöldi ungmenna sem hlutu styrk er 285. Fjöldi styrkhæfra móta á fyrsta ársþriðjungi var 71 og nema heildarstyrkir á fyrsta ársþriðjungi 18,3 milljónum króna.
Almennar fréttir
30. jún. 2025

Sumarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun: Ungt fólk í meirihluta

Sumarfjarnám þjálfaramenntunnar ÍSÍ, 1. og 2. stig, er nú í fullum gangi en 64 nemendur skráðu sig í sumarfjarnámið; 32 karlar og 32 konur.
Almennar fréttir
25. jún. 2025

Mikilvægt að „Allir með“ haldi áfram

„Ég þekki verkefnið vel og tel afar mikilvægt að það haldi áfram, enda er það þegar farið að skila árangri. Íþróttahreyfingin er sá vettvangur sem er hvað öflugastur er kemur að forvörnum og lýðheilsu og eins og nafnið á verkefninu gefur til kynna, „Allir með“, viljum við vera fyrir öll börn. Svæðisfulltrúar íþróttahreyfingarinnar eru mjög mikilvægir í þessari vinnu því þeir eru tengiliðir við sveitarfélögin út um allt land,“ segir Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ.
Almennar fréttir
25. jún. 2025

Hvatasjóður úthlutar 38,5 milljónum

Annarri úthlutun úr Hvatasjóði íþróttahreyfingarinnar er lokið. Samþykktar voru 72 umsóknir og um 38,5 milljónum var úthlutað í verkefni sem samræmast áhersluatriðum sjóðsins.
Almennar fréttir
23. jún. 2025

Íþróttavika Evrópu 10 ára

Íþróttavika Evrópu, European Week of Sport, #Beactive fagnar 10 ára afmæli í ár. Átakið hefur hvatt milljónir Evrópubúa til að hreyfa sig meira og lifa heilbrigðari lífsstíl.
Almennar fréttir
23. jún. 2025

Flöggum fána lýðheilsu

Lýðheilsa og forvarnir er leiðarstef íþróttahreyfingarinnar og það var jafnframt inntakið í málþingi á vegum Fræðslu og forvarna - félags áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum, IOGT á Íslandi og SAFF - Samstarf félagasamtaka í forvörnum, sem haldið var í Þjóðminjasafninu þann 16. júní.
Almennar fréttir
23. jún. 2025

Alþjóðlegi Ólympíudagurinn í dag - Íþróttagleði í Vogunum

Í dag, 23. júní, er alþjóðlegi Ólympíudagurinn og er hann haldinn hátíðlegur um heim allan. Markmiðið með deginum er að hvetja fólk til að koma saman, hreyfa sig og hafa gaman, en dagurinn er ætlaður öllum óháð íþróttalegri getu.
Almennar fréttir
18. jún. 2025

Tíu ná alþjóðlegu þjálfarastigi 1 hjá BFSÍ

Bogfimisamband Íslands (BFSÍ) hélt alþjóðlegt þjálfaranámskeið (1. stig) hér á Íslandi dagana 9.-14. júní. Námskeiðið er styrkt af Ólympíusamhjálpinni (Olympic Solidarity) með stuðningi frá ÍSÍ og Alþjóðlega bogfimisambandinu (World Archery). Þau tíu sem luku 1. stiginu hljóta alþjóðleg þjálfararéttindi til næstu fjögurra ára.
Almennar fréttir