Fara í efni

Fréttir

15. nóv. 2025

Nýjungar í íþróttahreyfingunni með Abler

​ÍSÍ og UMFÍ hafa samið við tæknifyrirtækið Abler um þrjú mikilvæg verkefni sem gagnast íþróttahreyfingunni, stjórnendum og iðkendum um allt land. Samningurinn er liður í samstarfi íþróttahreyfingarinnar við Abler, sem síðastliðin fjögur ár hefur þróað og þjónustað skilakerfi ÍSÍ og UMFÍ sem heldur utan um árleg skil sambandsaðila og íþróttafélaga á starfsskýrslum til samtakanna.
Almennar fréttir
14. nóv. 2025

Umsóknarfrestur í Ferðasjóði íþróttafélaga rennur út 12. janúar 2026

Vakin er athygli á því að umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga er opið til umsóknar um styrk vegna keppnisferða innanlands á fyrirfram skilgreind styrkhæf mót ársins 2025. Umsóknarfrestur er til miðnættis mánudagsins 12. janúar 2026.
Almennar fréttir
14. nóv. 2025

„Gæðavottunin lykilþáttur í að viðhalda öflugu íþróttastarfi"

Skíðafélag Akureyrar fékk endurnýjun viðurkenningar félagsins sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Almennar fréttir
10. nóv. 2025

Áframhaldandi stuðningur við Allir með!

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, Alma Möller heilbrigðisráðherra og Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, ætla að veita 60 milljónum króna til að auka þátttöku og virkni fatlaðs fólks í íþróttastarfi, einkum fatlaðra barna og ungmenna
Almennar fréttir
7. nóv. 2025

62 þjálfarar útskrifaðir úr haustfjarnámi ÍSÍ

Tölfræði úr fjarnámi ÍSÍ í þjálfaramenntun, 1. stigi.
Almennar fréttir
7. nóv. 2025

Allir með leikarnir 8. nóvember - sannkölluð íþróttaveisla!

Allir með leikarnir verða haldnir í Laugardalshöll laugardaginn 8. nóvember. Leikarnir eru sannkölluð íþróttaveisla fyrir börn á grunnskólaaldri með fatlanir. Hægt verður að prófa ýmsar íþróttagreinar á leikunum, þ.e. handknattleik, körfuknattleik, knattspyrnu, fimleika, frjálsíþróttir, badminton, keilu, pílu, borðtennis og klifur og einnig jassballet og leiki.
Almennar fréttir
5. nóv. 2025

Íþróttaeldhugi ársins 2025

Íslendingar eru hvattir til að senda inn ábendingar um öfluga sjálfboðaliða í íþróttahreyfingunni. Íþróttaeldhugi ársins verður tilnefndur samhliða lýsingu á kjöri Íþróttamanns ársins 2025. Lottó og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands standa fyrir þessari tilnefningu.
Almennar fréttir
4. nóv. 2025

Syndum Sett í Ásvallalaug

Syndum, landsátak í sundi var sett með formlegum hætti í Ásvallalaug mánudaginn 3. nóvember. Þetta er í fimmta sinn sem Syndum – landsátak í sundi er sett
Almennar fréttir
31. okt. 2025

Viltu vinna á skrifstofu ÍSÍ?

ÍSÍ leitar að öflugum aðila til að sinna kynningar- og markaðsmálum á skrifstofu sambandsins í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Starfið felur í sér að miðla upplýsingum um starfsemi og viðburði, sjá um umfjöllun í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum, auk þess að styðja við stefnumótun íþróttahreyfingarinnar í upplýsingamiðlun.
Almennar fréttir