Í kvöld voru úrslit í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna (SÍ) um Íþróttamann ársins 2025 tilkynnt, í beinni útsendingu RÚV frá sameiginlegu hófi ÍSÍ og SÍ í Silfurbergi í Hörpu.
Laugardaginn 3. janúar nk. fer fram sameiginlegt hóf Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Samtaka íþróttafréttamanna (SÍ) í Hörpunni, þar sem ÍSÍ afhendir viðurkenningar til íþróttafólks sérsambanda ÍSÍ og kjör SÍ á Íþróttamanni ársins, Liði ársins og Þjálfara ársins verður tilkynnt.
Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands hefur samþykkt tillögur stjórnar Afrekssjóðs ÍSÍ um flokkun sérsambanda ÍSÍ í afreksflokka og úthlutun úr sjóðnum fyrir árið 2026, en úthlutun nemur alls tæpum 815,7 m.kr. að þessu sinni.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ), í samvinnu við Lottó, stendur fyrir kjöri á Íþróttaeldhuga ársins samhliða kjöri á Íþróttamanni ársins þann 3. janúar næstkomandi. Íþróttaeldhugi ársins er valinn úr röðum sjálfboðaliða í íþróttahreyfingunni, sem hafa í gegnum árin nýtt eigin hæfileika, frítíma og sérþekkingu til að efla íþróttastarfið í sínu nærumhverfi eða á landinu öllu.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands sendir sambandsaðilum sínum, íþrótta- og ungmennafélögum, samstarfsaðilum og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár!
Með kærum þökkum fyrir það liðna!