Gull- og bronsverðlaun íslensku handknattleiksliðanna á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar voru þau fyrstu sem Ísland vinnur í hópíþrótt á Ólympíuhátíðinni. Keppni lauk í Skopje þann 26. júlí og heilt yfir stóðu íslensku keppendurnir sig afar vel.
Höskuldur Goði Karlsson fékk nýverið afhentan Heiðurskross ÍSÍ, æðstu heiðursviðurkenningu íþróttahreyfingarinnar. Framkvæmdastjórn ÍSÍ hafði fyrir þó nokkru ákveðið að heiðra Höskuld Goða fyrir sitt ómetanlega og langvarandi starf í þágu íþróttahreyfingarinnar en þar sem hann átti ekki heimangengt á ársþing ÍSÍ í maí fór afhendingin fram á heimili Höskuldar á dögunum.
Á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Skopje sem lauk um nýliðna helgi keppti margt af okkar efnilegasta íþróttafólki sem vafalaust á framtíðina fyrir sér. Það er stundum sagt að eplið falli sjaldan langt frá eikinni en á hliðarlínunni og utan vallar í Skopje var öflugur hópur, þjálfara, flokkstjóra, foreldra og aðstoðarmanna, sem náði afar langt á íþróttasviðinu á sínum ferli.
Síðasti keppnisdagurinn á EYOF í Skopje hófst á í tugþrautinni í frjálsíþróttum þar sem Hjálmar Rúnarsson setti Íslandsmet í 1500m og bæði U17 landslið í handknattleik kepptu um verðlaun. Stelpurnar unnu bronsið og strákarnir tóku gullið.
Á dögunum birtist grein á visir.is eftir forseta ÍSÍ, Willum Þór Þórsson, þar sem hann vekur máls á þeim vanda sem snýr að íþróttaveðmálum og þá sérstaklega áhrifum þeirra á ungt fólk á Íslandi.
Íslensku U17 landsliðin í handbolta, bæði í kvenna- og karlaflokki hafa staðið sig afar vel á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar (EYOF), sem fram fer dagana 20.–26. júlí í Skopje í Norður Makedóníu. Liðin hafa unnið til mikillar athygli fyrir skipulagðan og kraftmikinn leik og tryggt sér sæti í undanúrslitum keppninnar.