Öðrum keppnisdegi Ólympíuhátíðar Evrópuæskunnar (EYOF) er lokið, Í dag var keppt í badminton, borðtennis, áhaldafimleikum, tímatöku í götuhjólreiðum og handknattleik stúlkna og drengja.
Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ og Andri Stefánsson, framkvæmdarstjóri ÍSÍ eru staddir á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Skopje. Þeir heimsóttu keppendur á hótelið þeirra í dag.
Vakin er athygli á því að umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga er opið til umsóknar um styrki vegna keppnisferða innanlands á fyrirfram skilgreind styrkhæf mót ársins 2025.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 12. janúar 2026.
Lyfjaeftirlit Íslands vekur athygli á nýjung í fræðslumálum varðandi lyfjamál í íþróttum. Nú stendur til boða að skrá sig á netnámskeið á íslensku sem sérsniðið er fyrir ungt og efnilegt íþróttafólk, 16 ára og eldri.