Formannafundur ÍSÍ fór fram föstudaginn 20. nóvember í Stapa í Reykjanesbæ. Fundurinn var vel sóttur og bar þar hæst staða mála frá síðasta Íþróttaþingi ÍSÍ, skýrsla starfshóps um skattskyldu íþróttastarfsemi og stefnumótun íþróttahreyfingarinnar.
Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, setti fundinn og flutti ávarp. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, úr framkvæmdastjórn ÍSÍ, var kosin fundarstjóri og fundarritari var Jón Reynir Reynisson, starfsmaður á Stjórnsýslusviði ÍSÍ. Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, flutti skýrslu framkvæmdastjórnar og greindu sviðsstjórarnir Halla Kjartansdóttir og Ragnhildur Skúladóttir, ásamt Kristínu Birnu Ólafsdóttur afreksstjóra ÍSÍ, frá starfinu á sínum sviðum. Þá fór Daníel Jakobsson, gjaldkeri ÍSÍ, yfir fjármál sambandsins.
Staða þingsamþykkta
Í skýrslu framkvæmdastjórnar var farið yfir stöðu þeirra 27 tillagna sem lagðar voru fyrir 77. Íþróttaþing ÍSÍ í maí 2025. Meðal þess sem afgreitt hefur verið eru breytingar á lögum ÍSÍ, Afreksstefna ÍSÍ, tillögur um jafnréttismál og bætta lýðheilsu og úthlutunarreglur ÍSÍ vegna lottó. Þá má nefna stefnu um verndun og velferð í íþróttahreyfingunni, sem samþykkt var samhljóða á Formannafundi í fyrra. Hefur henni verið fylgt eftir með nýju efni á vef ÍSÍ um það hvernig tilkynna megi atvik, taka á móti frásögn og bregðast við. Tillaga um aðgengi fyrir alla er sömuleiðis komin í farveg í gegnum verkefnið Allir með, sem er í fullum gangi. Frá því að það hófst árið 2023 hefur þátttaka fatlaðra barna í íþróttum aukist úr 4% í 10,5%.
Meðal þeirra tillagna sem eru í vinnslu eru tillögur um skráningarkerfi fyrir íþróttahreyfinguna, nýjar og samræmdar siðareglur og veðmálasíður. Einnig tillaga um aukið samstarf ÍSÍ og UMFÍ á sviði fræðslu, almenningsíþrótta, lýðheilsu og sjálfbærnimála, þar sem báðir aðilar leggja til mannauð og fjármagn. Mun framkvæmdastjórn leggja mat á framgang hennar á Íþróttaþingi 2027. Stefnumótunarvinnan, sem fjallað er um hér að neðan, tengist einnig þessu samstarfi.
Skattskyld íþróttastarfsemi
Jón Steindór Árnason og Jónas Gestur Jónasson, fulltrúar ÍSÍ í starfshópi fjármála- og efnahagsráðherra um skattaleg réttindi og skyldur íþróttafélaga, kynntu skýrslu hópsins sem skilað var til ráðherra 30. september síðastliðinn. Lagði starfshópurinn meðal annars til að þau sem hefðu minni háttar tekjur af tilfallandi störfum, til dæmis við þjálfun, fengju fastan 30–40% frádrátt af tekjum upp að 3,5–4 milljónum króna á ári. Einnig lagði hópurinn til skýrari reglur um undanþágu íþróttastarfsemi frá virðisaukaskatti.
Frumvarpsdrögin sem nú liggja fyrir ganga hins vegar skemur, með 2 milljóna króna mörkum og 30% frádrætti, og taka þau ekki á virðisaukaskatti. Þá náðust ekki fram áherslur ÍSÍ um endurgreiðslu tryggingagjalds og um að merki styrktaraðila á keppnisbúningum teldust ekki auglýsing. Nánar má lesa um tillögur starfshópsins í fyrri frétt á vef ÍSÍ.
Stefnumótunin tekur næstu skref
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir frá ráðgjafafyrirtækinu Expectus fór yfir stöðu stefnumótunar íþróttahreyfingarinnar, en vinnan hófst einmitt á Formannafundi ÍSÍ í fyrra. ÍSÍ og UMFÍ leiða vinnuna en að henni kemur hreyfingin öll, allt frá sambandsaðilum til grasrótarinnar. Hafa um 30 vinnufundir verið haldnir um allt land síðan. Stefnudrögin voru send til umsagnar í haust og byggja þau á fimm áherslum:
- Fjölbreytt og aðgengilegt íþróttastarf
- Fagmennska og ábyrgð
- Afreksstarf á heimsmælikvarða
- Lýðheilsa, velferð og forvarnir
- Jöfn tækifæri til þátttöku
Í samráðinu hefur ítrekað komið fram ósk um skýrari hlutverk, betri verkaskiptingu og meira samstarf innan hreyfingarinnar. Næsta skref er því að skoða skipulag og starfshætti og voru fimm sviðsmyndir kynntar á fundinum. Verður vinnuhópur skipaður um hverja þeirra og var auk þess samþykkt tillaga um sjötta hópinn, um fjármál. Vinnuhóparnir verða því sex:
- Stjórnir, nefndir og ráð ÍSÍ og UMFÍ
- Þjónustumiðstöðvar ÍSÍ og UMFÍ
- Íþróttahéruð og svæðisstöðvar
- Sérsambönd
- Fyrirmyndarstarf og gæði
- Fjármál
Í hverjum hópi verða sjö manns og eiga hóparnir að skila niðurstöðum sínum 28. febrúar 2027.
Á vef ÍSÍ má finna gögn fundarins, meðal annars skýrslu framkvæmdastjórnar, kynningu á skýrslu um skattskyldu íþróttafélaga, ársreikning ÍSÍ 2025 og glærur um fjármál.
.





















