Búið er að opna fyrir starfsskýrsluskil í skilakerfi ÍSÍ og UMFÍ, www.skila.is. Samkvæmt lögum ÍSÍ og UMFÍ þá ber öllum sambandsaðilum og félögum innan þeirra vébanda að skila starfsskýrslum fyrir 15. apríl nk.
Handknattleiksfélag Kópavogs (HK) fékk viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ föstudaginn 30. janúar. Veitt var viðurkenning fyrir aðalstjórn og sex deildir félagsins, þ.e. bandýdeild, blakdeild, borðtennisdeild, dansdeild, handknattleiksdeild og knattspyrnudeild.
Skíðasambands Íslands hefur valið keppendur og aðstoðarfólk á Vetrarólympíuleikana í Mílanó Cortína. Leikarnir verða settir þann 6. febrúar næstkomandi og lýkur 22. febrúar næstkomandi.