Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Evrópumótið í hópfimleikum á Íslandi haustið 2014

22.01.2013

Fimleikasamband Íslands hefur fengið það staðfest frá Fimleikasambandi Evrópu, að tilboði þeirra um að halda Evrópumót í Hópfimleikum haustið 2014 hefur verið samþykkt. Þetta verður 10 skiptið sem Evrópumótið fer fram, en fyrsta opinbera mótið fór fram 1996 í Finnlandi.

Íslensku landsliðin hafa verið mjög sigursæl á evrópumótum undanfarin ár og komu heim með tvo meistaratitla frá síðasta móti sem haldið var í Danmörku haustið 2012.

Hópfimleikar (TeamGym) eru ein af sjö greinum innan Fimleikasambands Evrópu (UEG) og hefur verið í miklum vexti innan Evrópu síðustu árin, en hún er nú stunduð í langflestum Evrópulöndum. Á heimsvísu er greinin að festa rætur í Bandaríkjunum, Ástralíu, Nýja Sjálandi, Suður Afríku og Japan og vonir standa til að hún verði tekin upp innan Alþjóða Fimleikasambandsins á næstu árum.

Evrópumótið 2014 er lang stærsti fimleikaviðburður sem fram hefur farið á Íslandi og viðurkenning á því frábæra starfi sem fram fer innan íslensku fimleikahreyfingarinnar hvort sem litið er til iðkenda, þjálfara, starfsfólks eða sjálfboðaliða.

Áætlað er að á milli 700 og 1000 keppendur frá 15-20 löndum komi til landsins og þeim fylgi um 1500-2000 áhorfendur.