Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
26

Ársþingi ÍHÍ lokið

08.06.2015Ársþing var haldið laugardaginn 30. maí síðastliðinn en þingið fór fram í Pakkhúsinu á Akureyri. Dagskráin var hefðbundin.
Viðar Garðarsson var endurkjörinn sem formaður sambandsins en aðrir í stjórn eru Árni Geir Jónsson, Björn Davíðsson, Helgi Páll Þórisson og Jón Þór Eyþórsson.
Í varastjórn voru kosin þau Arnar Þór Sveinsson, Linda Brá Sveinsdóttir og Óli Þór Gunnarsson.
Samþykktar voru breytingar á lögum sambandsins og einnig fimm reglugerðum þess og verða breytingarnar settar inn á vef sambandsins fljótlega.
Helsta umræðuefnið fyrir utan fyrrnefnd mál var um landsliðsmál en nk. haust ætti 
niðurstaða að liggja fyrir í þeim málum.