Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
26

Íþróttavika Evrópu 2015

31.08.2015

Evrópusambandið hefur hrundið af stað nýju verkefni sem kallast Íþróttavika Evrópu. Markmiðið með vikunni er að kynna íþróttir og hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Slagorð vikunnar er "BeActive" eða „Vertu virkur“ og með því er verið að hvetja alla Evrópubúa til að hreyfa sig án tillits til aldurs, bakgrunns eða líkamlegs forms. Þessi vika á að stuðla að því að einstaklingar, stjórnvöld, íþróttahreyfingin, almenningur og fleiri standi saman í því að auka þátttöku almennings í íþróttum og hreyfingu.

Fyrsta Íþróttavika Evrópu verður haldin 7. – 13. september 2015 og verður sett í Brussel. Allan septembermánuð munu hinir ýmsu viðburðir í tengslum við vikuna fara fram um alla Evrópu. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur hlotið styrk frá Evrópusambandinu í gegnum Erasmus+ styrkjakerfi þeirra til verkefna sem munu tengjast vikunni.

Í heild er vikan samsett af viðburðum sem Evrópusambandið fjármagnar, ásamt Week´s European Partners, National Coordinatiors, ráðuneytum, frjálsum félagasamtökum, stjórnvöldum og fyrirtækjum í einkageiranum. Einstaklingar og samtök geta einnig búið til og skráð viðeigandi viðburð sem passar innan ramma Íþróttaviku Evrópu.

Myllumerkið #BeActive er slagorð Íþróttaviku Evrópu. Slagorðinu er ætlað að opna augu almennings fyrir mikilvægi hreyfingar, að breiða út boðskapinn og fá alla Evrópubúa til að hreyfa sig. ÍSÍ hvetur fólk til að nota myllumerkið í tengslum við vikuna.

Leiðarljós vikunnar eru þrjú:
• Upplýsa: Vekja athygli á jákvæðum áhrifum heilbrigðs lífsstíls.
• Hvetja: Sýna fólki hvernig hægt er að hreyfa sig og tileinka sér heilbrigðan lífsstíl.
• Aðstoða: Skapa tækifæri fyrir fólk til að hreyfa sig og vera virkt í hröðu umhverfi nútímans.

Íþróttavika Evrópu er skipulögð í kringum fjóra aðal daga þar sem hver og einn er tileinkaður: Menntun, vinnustöðum, útiveru og líkamsræktarstöðvum. Þessir staðir bjóða upp á aðstæður þar sem fólk á öllum aldri, með ólíkan bakgrunn og í mis góðu líkamlegu formi getur stundað íþróttir og hreyfingu, þannig að virkni verði hluti af þeirra lífi.

Nánari upplýsingar um Íþróttaviku Evrópu er að finna á heimasíðu Evrópusambandsins, http://ec.europa.eu/sport/week/

Þau verkefni ÍSÍ sem tengjast Íþróttaviku Evrópu að þessu sinni eru Göngum í skólann 2015, Hjólum í skólann 2015 og Norræna skólahlaupið. Öll þessi verkefni miða að því að fá börn og ungmenni til að hreyfa sig, ásamt því að hvetja til aukinnar meðvitundar um mikilvægi hreyfingar í daglegu lífi. Verkefnin hafa lengi verið á forræði ÍSÍ en með því að tengja þau Íþróttaviku Evrópu skapast svigrúm til að bæta verkefnin enn frekar, bæði í kynningu og framkvæmd.

Göngum í skólann fer fram í níunda sinn dagana 9. september til 7. október 2015. Markmið verkefnisins eru að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta og hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða. Á síðasta ári tóku milljónir barna frá yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hefur þátttakan hér á landi vaxið jafnt og þétt í gegnum árin.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur umsjón með verkefninu en aðrir samstarfsaðilar eru: Samgöngustofa, Embætti Landlæknis, Ríkislögreglustjóri, mennta- og menningarmálaráðuneytið, Heimili og skóli og Slysavarnarfélagið Landsbjörg.

Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á vefsíðu Göngum í skólann, www.gongumiskolann.is 


Hjólum í skólann – framhaldsskólakeppni fer fram í þriðja sinn dagana 9.-22. september 2015. Markmiðið er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta.

Hjólum í skólann er samstarfsverkefni ÍSÍ, Hjólafærni á Íslandi, Embættis landlæknis, Reykjavíkurborgar, Samgöngustofu og Sambands íslenskra framhaldsskólanema. Samstarfshópur varð til um verkefnið að frumkvæði Hjólafærni á Íslandi og tók hann til starfa síðsumars 2012.

Nánari leiðbeiningar um skráningu skóla/liða/ liðsmanna er að finna á vefsíðu Hjólum í skólann, www.hjolumiskolann.is undir „Um Hjólað“.

Norræna skólahlaupið er árlegt verkefni sem grunnskólum á Norðurlöndunum býðst að taka þátt í. Með hlaupinu er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Verkefnið nýtur einnig stuðnings Mjólkursamsölunnar og Íþróttakennarafélags Íslands.



Fyrir nánari upplýsingar um verkefnin má hafa samband við verkefnastjóra Almenningsíþróttasviðs:

Hrönn Guðmundsdóttir
hronn@isi.is
514-4023

Myndir með frétt