Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Opið fyrir umsóknir í Ferðasjóð íþróttafélaga

27.11.2017

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Ferðasjóð íþróttafélaga. Frestur til að skila inn umsóknum er til miðnættis 10. janúar 2018.  Ekki verður hægt að taka við umsóknum eftir þann tíma. Umsóknir eru sendar í gegnum rafrænt umsóknarsvæði sjóðsins sem má finna með því að smella hérÖll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um styrki í sjóðinn vegna keppnisferða innanlands á fyrirfram ákveðin styrkhæf mót ársins 2017. Til úthlutunar eru 127 milljónir króna. Styrkir úr sjóðnum verða greiddir út í febrúar.

Við stofnun umsóknar er send vefslóð á uppgefið netfang tengiliðar, sem nýtist sem lykill inn á viðkomandi umsókn þar til umsókn er send. Umsækjendur eru hvattir til að vanda frágang umsókna til að auðvelda og einfalda úrvinnslu þeirra. Listi yfir styrkhæf mót opnast í kerfinu þegar búið er að stofna umsókn.

Ef nánari upplýsinga er þörf, vinsamlegast hafið samband við Höllu Kjartansdóttur skrifstofustjóra ÍSÍ í síma 514 4000 eða í gegnum netfangið halla@isi.is.