Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Betra félag

24.09.2018

Á vefsíðu ÍSÍ má finna ýmsar upplýsingar er varða skipulagslega þætti íþróttafélags, sérsambands og héraðssambands, t.d. stofnun íþróttafélags, hlutverk stjórna, samskipti við fjölmiðla, hvernig á að skrifa fréttatilkynningu, halda blaðamannafund, gátlisti o.fl. Eitt það mikilvægasta við skipulag íþróttafélags, sérsambands og héraðssambands er að skrásetja söguna og vita hver tilgangur og hlutverk þeirra er.

Saga
Mikilvægt að taka saman sögulegt yfirlit og hafa einhverjar leiðir til þess að halda utan um skrár, s.s. fundagerðir, fundarsamþykktir, mót, úrslit, sigurvegara, birt efni í fjölmiðlum, blöð og annað útgefið efni sem hægt er að notast við til skráningar. Við hátíðarafmæli er athugandi að taka saman afmælisrit sem fjallar meðal annars um sögu sambandsins.

Tilgangur og hlutverk
Þó svo að greint sé frá helsta tilgangi og hlutverkum héraðs- og sérsambanda í lögum ÍSÍ þá hefur hvert og eitt samband/íþróttafélag sinn sérstaka tilgang og hlutverk. Þess er yfirleitt getið í lögum hvers íþróttafélags/héraðs- og sérsambands.

Hér má sjá öll myndböndin sem gerð voru í tengslum við verkefnið Betra félag