Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Taktu þátt í Lífshlaupinu

24.01.2019

Skráning er í fullum gangi fyrir Lífshlaupið 2019. Keppnin stendur yfir frá 6. - 26. febrúar fyrir vinnustaði og frá 6. - 19. febrúar fyrir grunn- og framhaldsskóla. Á meðan á Lífshlaupinu stendur eru allir hvattir til að deila myndum af þátttöku sinni í gegnum vefsíðu Lífshlaupsins hér og einnig á Facebook eða Instagram með myllumerkinu #lifshlaupid. Allir myndasmiðir fara í lukkupott í myndaleik Lífshlaupsins og eiga möguleika á að vera dregnir út og vinna flotta vinninga. Þá verða einnig flottustu myndirnar verðlaunaðar sérstaklega í lok keppninnar og því er um að gera að taka myndarlega á því við myndasmíðina.

Það er mjög einfalt að skrá sig til leiks í Lífshlaupinu. Leiðbeiningar um skráningu, bæði fyrir þá sem hafa tekið þátt áður og ekki, má sjá hér á vefsíðu Lífshlaupsins. Við viljum vekja athygli á að það er þarf ekki að stofna fyrirtækið aftur ef það hefur tekið þátt áður, hinsvegar þarf að stofna nýtt lið en það er ekki hægt að ganga í lið frá því í fyrra.

Gangi ykkur vel í Lífshlaupinu 2019!