Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Göngum í skólann 2019

15.08.2019

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands ásamt samstarfsaðilum ræsir verkefnið Göngum í skólann í þrettánda sinn miðvikudaginn 4. september næstkomandi. Ætlar þinn skóli ekki örugglega að taka þátt í ár?

Á síðasta ári tóku milljónir barna frá yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt í gegnum árin og fyrsta árið voru þátttökuskólar 26 en alls 73 skólar skráðu sig til leiks árið 2018.

Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta og hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.

Verkefnið er orðið að árlegum viðburði í mörgum skólum og býður upp á lærdómsríka og skemmtilega leið fyrir nemendur til að fræðast um umferðarreglur, öryggi og umhverfismál. Þeir skólar sem ætla að taka þátt í Göngum í skólann geta farið á vefsíðu Göngum í skólann, www.gongumiskolann.is og í „Skráning“.

Einnig er hægt að hafa samband við Lindu Laufdal, verkefnastjóra Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, í síma: 514-4000 eða á netfangið linda@isi.is.