Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Torfi Einarsson sæmdur Gullmerki ÍSÍ

21.10.2019

Knattspyrnufélagið Hörður fagnar100 ára afmæli félagsins á þessu ári. Stofnfundur félagsins var haldinn 27. maí 1919 í Sundstræti 41 og voru stofnendur tólf ungir Ísfirðingar. Þeir höfðu allir áður starfað í Fótboltafélagi Ísafjarðar, sem stofnað var 1914 var starfandi í tíu ár. Fyrsti formaður Harðar var Þórhallur Leósson og Dagbjartur Sigurðrsson og Helgi Guðmundsson skipuðu með honum fyrstu stjórnina. Knattspyrnufélagið Hörður tók strax forystu í knattspyrnumálum kaupstaðarins og átti fyrir höndum langa og gifturíka daga. Saga félagsins nær allt til þessa dags.

Glímudeild Harðar stóð fyrir hátíðadagskrá laugardaginn 12. október sl. í tilefni aldarafmælis félagsins og við það tækifæri var Torfi Einarsson sæmdur Gullmerki ÍSÍ fyrir góð störf í þágu félagsins og íþrótta á Ísafirði.
ÍSÍ óskar Torfa innilega til hamingju með viðurkenninguna.