Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
28

Ólympíuhlaup ÍSÍ sett í Grunnskóla Grindavíkur í dag

07.09.2022

Ólympíuhlaup ÍSÍ var sett í Grunnskóla Grindavíkur í dag í blíðskaparveðri. Nemendum var skipt í þrjá hópa eftir skólastigum þar sem yngsta stigið hóf hlaupið, síðan tók miðstigið við og að lokum unglingastigið. Blossi lukkudýr Smáþjóðaleikanna var með í för og sá meðal annars um upphitun og hvatningu hjá yngsta aldurshópnum. Eysteinn Kristinsson skólastjóri Grunnskóla Grindavíkur tók á móti okkur og fjöldi kennara og annarra starfsmanna aðstoðuðu við framkvæmd hlaupsins. Eysteinn tók á móti gjöf frá ÍSÍ sem innihélt nokkrar gerðir af boltum til notkunar á skólalóðinni eða í íþróttahúsinu. Í Grunnskóla Grindavíkur er vel á sjötta hundrað nemenda og hlupu allir nemendur sömu vegalengdina eða 2,5 km. Að hlaupinu loknu gátu krakkarnir gætt sér á léttmjólk í boði Mjólkursamsölunnar.

Í upphafi dags fengu nemendur í 9. og 10. bekk fræðslu um orkudrykki, fæðubótarefni og svefn frá Birgi Sverrissyni framkvæmdastjóra Lyfjaeftirlits Íslands. 

Myndir frá deginum má sjá hér á myndasíðu ÍSÍ.

Hlaupið er styrkt af verkefninu Íþróttavika Evrópu og verða þrír þátttökuskólar, sem ljúka hlaupinu fyrir 10. október og skila inn upplýsingum til ÍSÍ, dregnir út úr potti. Hver þessara þriggja skóla fær 100.000 króna inneign í Altis, en Altis selur vörur til íþróttaiðkunar sem nýtast nemendum á skólalóðinni eða í íþróttahúsinu. Þeir skólar sem ljúka hlaupinu eftir 10. október geta eftir sem áður skilað inn upplýsingum og fengið send viðurkenningaskjöl, en gert er ráð fyrir að allir skólar hafi lokið hlaupinu fyrir árslok 2022.

ÍSÍ þakkar nemendum fyrir þátttökuna og starfsliði skólans fyrir þeirra framlag og jákvæðni. Jafnframt hvetur ÍSÍ þá skóla sem eiga eftir að hlaupa til að taka þátt.

Myndir með frétt