Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Miðasala hafin á Evrópuleikana 2023

19.04.2023

 

Miðasalan er hafin á 3ju Evrópuleikana en þeir fara að þessu sinni fram í Kraków-Małopolska í Póllandi í júní á þessu ári.  Miða er hægt að kaupa á opinberu vefsíðu Evrópuleikanna, sem hægt er að finna hér. 

Rúmlega 7.000 íþróttamenn taka þátt í 26 íþróttagreinum og ættu allir íþróttaáhugamenn að geta fundið eitthvað skemmtilegt við sitt hæfi til að horfa á.  18 af þessum 26 íþróttagreinum eru ólympíugreinar þar sem keppendum gefst tækifæri til að tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum í París á næsta ári svo mikið er í húfi fyrir keppendur.  

Mismunandi miðar og passar eru í boði, en ókeypis aðgangur verður fyrstu þrjá dagana þegar keppt verður í frjálsum, teqball, padel, muaythai og kickbox.

Nánari upplýsingar um leikana má finna hér.

Myndir með frétt