Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Norðmenn fræðast um íþróttafélög og frístundastyrki

21.04.2023

 

Tæplega 30 manna hópur Norðmanna, sem vinnur við íþróttir í ólíkum sveitarfélögum Rogaland fylkis, heimsótti Ísland í vikunni til að fræðast um íþróttastarfið á Íslandi, um frístundastyrki, skipulag og fjármögnun íþróttafélaga, tengsl skóla og frístundastarfs og fleira.  Rogaland er í suðvesturhluta Noregs og eitt af ellefu fylkjum landsins. Íbúar þar eru meira en hálf milljón. 

Ragnhildur Skúladóttir, sviðsstjóri Fræðslu- og almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, og Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, voru með fyrirlestra fyrir hópinn um uppbyggingu íþróttahreyfingarinnar á Íslandi og um sérkenni barna- og unglingastarfs hér á landi.  Að auki voru þær hópnum innan handar þá tvo daga sem heimsókn þeirra stóð yfir.

Hópurinn byrjaði á heimsókn í Laugardalshöll þar sem Birgir, forstöðumaður hallarinnar, tók á móti hópnum. Þaðan var ferðinni heitið til Ármanns þar sem Jón Þór Ólason, framkvæmdastjóri, tók á móti hópnum sagði þeim frá félaginu og sýndi mannvirkin. Næsti viðkomustaður var Laugardalsvöllur, þar sem Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri, tók á móti hópnum og gekk með þau um mannvirkið og að lokum skoðaði hópurinn Laugardalslaug þar sem Árni Jónsson, forstöðumaður, hélt góða kynningu. Jóhanna Garðarsdóttir, hjá Reykjavíkurborg, fór yfir frístundakort borgarinnar, nýtingu þeirra, áskoranir og tækifæri. 

Hópurinn fór líka í skoðunarferð um ný og glæsileg íþróttamannvirki íþróttafélagsins Fram í Úlfarsárdal og fékk upplýsingar um þá miklu uppbyggingu sem þar hefur farið fram.  Þar tók íþróttastjórinn, Þór Björnsson, á móti hópnum og fór með um svæðið.  Að því loknu lá leið Norðmannanna, í fylgd Auðar og Ragnhildar, austur fyrir fjall að skoða Hellisheiðarvirkjun og síðan áfram til Selfoss.  Þar tóku Engilbert Olgeirsson, framkvæmdastjóri HSK, Helgi S. Haraldsson, formaður Umf. Selfoss, og Bragi Bjarnason, formaður bæjarráðs sveitarfélagsins Árborgar, á móti hópnum og sögðu frá starfseminni auk þess sem þeir sýndu þeim íþróttamannvirkin á vallarsvæðinu.  Frá Selfossi lá svo leiðin til Þingvalla þar sem Almannagjá var gengin.  Hópurinn endaði svo ferðina í böðunum í Hvammsvík.

Norðmennirnir voru þakklátir fyrir mjög góðar móttökur alls staðar sem þeir komu. 

 


 

Myndir með frétt