Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Gylfi Sigurðsson íþróttamaður ársins 2013 og Kristín Rós Hákonardóttir tekin inn í heiðurshöll ÍSÍ
Það var mikið um dýrðir í Gullhömrum í Grafarholti síðastliðið laugardagskvöld þegar Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnumaður var útnefndur íþróttamaður ársins 2013 af Samtökum íþróttafréttamanna. Aníta Hinriksdóttir frjálsíþróttakona var í öðru sæti og Guðjón Valur Sigurðsson handknattleiksmaður var í þriðja sæti.Íþróttamaður ársins 2013
Samtök íþróttafréttamanna og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands halda sameinginlegt hóf í tengslum við kjör Íþróttamanns ársins 2013. Hófið verður haldið í Gullhömrum, Grafarvogi, Reykjavík, laugardaginn 28. desember 2013 og hefst kl. 18:00. Bannlisti WADA 2014
Jólakveðja frá ÍSÍ
Sendum okkar bestu jóla- og nýárskveðjur með þökk fyrir samstarfið á árinu sem er að líða. Stjórn og starfsfólk Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Merry Christmas - Happy new year. Frohe Weihnachten - Gutes neues Jahr. The National Olympic and Sports Association of Iceland.Fjölmargir luku haustfjarnámi ÍSÍ í þjálfaramenntun
Úthlutun úr Afrekskvennasjóði Íslandsbanka og ÍSÍ
Sjóðsstjórn hefur farið yfir umsóknir vegna úthlutunar úr Afrekskvennasjóði Íslandsbanka og ÍSÍ 2013. Markmið og tilgangur sjóðsins er að styðja við bakið á afrekskonum í íþróttum og gera þeim betur kleift að stunda sína íþrótt og ná árangri.ÍSÍ gefur öllum héraðsskjalasöfnum á Íslandi bókina Íþróttabókin, ÍSÍ – saga og samfélag í 100 ár
Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ afhenti í dag fulltrúum héraðsskjalasafna á Íslandi eintak af afmælisbók ÍSÍ sem ber heitið „Íþróttabókin – ÍSÍ, saga og samfélag í 100 ár“. ÍSÍ hefur ákveðið að gefa öllum héraðsskjalasöfnum á landinu eintak af bókinni, sem inniheldur mikinn fróðleik um íþróttir í íslensku samfélagi síðustu 100 árin. Bókin var gefin út í tilefni af aldarafmæli sambandsins í fyrra. Undirritun samnings vegna Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ 2014
Körfuknattleiksdeild Tindastóls Fyrirmyndardeild ÍSÍ
Körfuknattleiksdeild Tindastóls fékk endurnýjun viðurkenningar deildarinnar sem fyrirmyndardeild ÍSÍ rétt fyrir stórleik liðsins í mfl. karla við nágrannana í Þór frá Akureyri föstudaginn 13. desember síðastliðinn. Mikil stemning var í íþróttahúsinu á Sauðárkróki enda leikmenn og dómarar komnir á völlinn og klárir til að hefja leik. Það var Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri sem afhenti formanni körfuknattleiksdeildarinnar Stefáni Jónssyni viðurkenninguna. Á myndinni eru ungir körfuboltaiðkendur deildarinnar og fyrir aftan þá eru Hafdís Einarsdóttir, Viðar Sigurjónsson, Eiríkur Loftsson og Stefán Jónsson sem heldur á viðurkenningunni. Sunddeild Njarðvíkur Fyrirmyndardeild ÍSÍ
Sunddeild Njarðvíkur fékk endurnýjun viðurkenningar deildarinnar sem Fyrirmyndardeild ÍSÍ laugardaginn 15. desember síðastliðinn á Aðventumóti félagsins í Vatnaveröld. Það var Sigríður Jónsdóttir ritari ÍSÍ og formaður Þróunar- og fræðslusviðs sem afhenti forystuaðilum deildarinnar viðurkenninguna. Sigríður var reyndar svo heppin að verða vitni að tveimur Íslandsmetum í 1500m skriðsundi í flokki meyja og sveina. Á myndinni eru frá vinstri, Sigríður Jónsdóttir, Anna Steinunn Gunnlaugsdóttir varaformaður deildarinnar og Harpa Kristín Einarsdóttir formaður.Iðkendatölur ÍSÍ fyrir árið 2012
Glímufélagið Ármann Fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Glímufélagið Ármann hélt upp á 125 ára afmæli sitt sunnudaginn 15. desember síðastliðinn með mikilli afmælishátíð í Laugardalnum í Reykjavík. Innan félagsins eru starfandi 10 deildir og er mikil gróska í starfseminni. Allar deildir félagsins fengu viðurkenningu frá ÍSÍ sem Fyrirmyndardeildir og þar með er félagið í heild sinni orðið Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Það er mikill áhugi fyrir þessari gæðavottun frá ÍSÍ þessa dagana og fjölmörg félög að sækja um viðurkenningu eða endurnýjun hennar eins og gera þarf á fjögurra ára fresti. Gæðavottun ÍSÍ tekur til fjölmargra þátta í starfsemi félaganna s.s. fjárhagslegra þátta, félagslegra, skipulagslegra og þátta er lúta að íþróttaþjálfun og menntun þjálfara. Einnig þurfa félög að hafa markað sér skýrar stefnur í hinum ýmsu málaflokkum eins og jafnréttismálum, umhverfismálum, forvarnarmálum og fræðslumálum. Það var Sigríður Jónsdóttir ritari ÍSÍ og formaður Þróunar- og fræðslusviðs sem afhenti Snorra Þorvaldssyni formanni félagsins viðurkenninguna fyrir félagið í heild. Forystumenn allra deilda fengu einnig afhentar viðurkenningar fyrir sínar deildir. Á myndinni eru þau Sigríður Jónsdóttir og Snorri Þorvaldsson.