Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Sunddeild Breiðabliks Fyrirmyndardeild ÍSÍ
Sunddeild Breiðabliks fékk endurnýjun viðurkenningar sinnar sem Fyrirmyndardeild ÍSÍ á uppskeruhátíð deildarinnar miðvikudaginn 29. janúar síðastliðinn. Sunddeildin fékk fyrst viðurkenningu sem Fyrirmyndardeild árið 2003 og er þetta önnur endurnýjunin sem deildin fær. Það var Sigríður Jónsdóttir ritari ÍSÍ og jafnframt formaður Þróunar- og fræðslusviðs sem afhenti formanni sunddeildarinnar Maríu Fanndal Birkisdóttur viðurkenninguna. Á myndinni eru þær María Fanndal og Sigríður.Opnað hefur verið fyrir starfsskýrsluskil
Fjarnám í þjálfaramenntun - skráning í gangi!
Fjarnám 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ í þjálfaramenntun hefst í febrúar og er skráning í fullum gangi. Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar íþróttahreyfingarinnar og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Meðal efnis er kennslufræði íþrótta, íþróttasálfræði, íþróttameiðsl, skipulag íþróttaþjálfunar, næringarfræði íþrótta, uppbygging líkamans, prófun á þoli, styrk, hraða o.fl. Fjarnám 1. stigs hefst mánudaginn 17. febrúar og fjarnám 2. og 3. stigs hefst 24. febrúar. Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000.Hjólað í vinnuna vefurinn í úrslitum
Úthlutun úr Afrekssjóði ÍSÍ fyrir árið 2014
Tilkynnt var um úthlutun úr Afrekssjóði fyrir árið 2014 í dag. Styrkveitingar ÍSÍ að þessu sinni nema samtals rúmlega 96 milljónum króna. Alls sóttu 26 sérsambönd um styrki úr sjóðnum. Hljóta þau öll styrk að þessu sinni vegna 37 landsliðsverkefna, 19 liða og vegna verkefna 38 einstaklinga. Sótt var um styrki til sjóðsins vegna verkefna 92 einstaklinga að þessu sinni og er aðeins hluti þeirra verkefna styrktur sérstaklega.Þjálfaramenntun 3. stigs ÍSÍ - NÝTT
Taekwondodeild Keflavíkur Fyrirmyndardeild ÍSÍ
Taekwondodeild Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags fékk endurnýjun viðurkenningar sinnar sem Fyrirmyndardeild ÍSÍ á aðalfundi deildarinnar 23. janúar síðastliðinn. Það var Sigríður Jónsdóttir ritari ÍSÍ og formaður Þróunar- og fræðslusviðs sem afhenti fráfarandi formanni TKD deildarinnar Mikael Þór Halldórssyni viðurkenninguna. Nýr formaður deildarinnar er Sigurbjörg Jónasdóttir. Á myndinni eru þau Mikael og Sigríður.Ólympíuhópurinn í Sochi
Sigurjón Pétursson endurkjörinn formaður Kraftlyftingasambandsins
Kraftlyftingasambands Íslands hélt sitt 4. ársþing laugardaginn 18.janúar síðastliðinn.
Sigurjón Pétursson var endurkjörinn formaður sambandsins til eins árs. Góð þátttaka á afreksráðstefnunni
Seinni dagur afreksíþróttaráðstefnunnar var í gær en mikill fjöldi sótti ráðstefnuna báða dagana eða samtals um 200 manns úr mörgum íþróttagreinum. Í fyrsta skipti var ráðstefnunni skipt á tvo daga og voru fyrirlesarar bæði innlendir og erlendir. Fræðslufundur með fulltrúum sérsambanda
Sundfélagið Ægir Fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Sundfélagið Ægir fékk endurnýjun viðurkenningar félagsins sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ sunnudaginn 19. janúar síðastliðinn. Viðurkenningin var afhent á sundmótinu á Reykjavíkurleikunum og var það Sigríður Jónsdóttir ritari ÍSÍ og formaður Þróunar- og fræðslusviðs sem afhenti Gústaf Adolf Hjaltasyni formanni Ægis viðurkenninguna. Þetta er í annað sinn sem félagið endurnýjar viðurkenningu sína sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Á myndinni eru þau Sigríður og Gústaf.