Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
EYOF 2019 - Hátíðin hafin
Setningarhátíð Ólympíuhátíðar Evrópuæskunnar fór fram í kvöld, sunnudaginn 21. júlí, kl. 20:00 í Kristallshöllinni í Bakú. Á dagskrá var innganga íþróttamanna með fánabera hvers lands í fararbroddi.EYOF 2019 - Móttökuhátíð
Í kvöld voru þátttakendur á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar boðnir velkomnirEYOF 2019 - Dagskrá íslenskra keppenda
Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar fer fram í Bakú í Azerbaijan 21. - 27. júlí 2019. Á listanum má sjá íslenska keppendur á Ólympíuhátíð Evópuæskunnar og fyrir neðan dagskrá íslenskra keppenda á hátíðinni:EYOF 2019 - Þátttakendur á leið til Bakú
Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar (EYOF) fer fram í Bakú í Azerbaijan 21. - 27. júlí 2019. Íslenskir þátttakendur halda flestir af stað til Bakú í dag, en handboltahópurinn heldur af stað á morgun. Ferðalagið til Bakú er nokkuð langt en hópurinn flýgur til Kaupmannahafnar í dag, til Istanbúl í Tyrklandi á morgun og síðan þaðan til Bakú sama dag. Vistarverur íslenska hópsins eru þó ekki langt frá flugvellinum í Bakú, eða um 20 mínútur. Þá fá þátttakendur tíma til að koma sér fyrir og hvílast. Daginn eftir, eða kvöldið 21. júlí, fer setningarathöfn hátíðarinnar fram og síðan hefst keppni morguninn 22. júlí. Ísland teflir fram 34 keppendum, 23 strákum og 11 stelpum.
EYOF 2019 - Háttvísin ofar öðru
Hrafnhildur og Matthías reynslunni ríkari

EYOF 2019 - Hópurinn sem fer til Bakú
Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar fer fram í Bakú í Azerbaijan 21. - 27. júlí 2019. Tilnefningar allra sérsambanda á þátttakendum liggja fyrir, bæði í einstaklingsgreinum og hópgreinum. Lokaskráning gerir ráð fyrir að Ísland verði með samtals 34 keppendur, 23 stráka og 11 stelpur. Þá munu liðsstjórar og þjálfarar fylgja hópnum auk þess sem einn aðili fer sem ungur sendiherra. Þrír íslenskir dómarar munu einnig starfa á hátíðinni, einn í fimleikum og tveir í handknattleik.
Friðjón B. Friðjónsson, Heiðursfélagi ÍSÍ, látinn
Friðjón B. Friðjónsson, Heiðursfélagi ÍSÍ, lést á Líknardeild Landspítalans 10. júlí síðastliðinn, á 83. aldursári.EYOF 2019 - Bakú
Þann 21. júlí nk. hefst Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Bakú í Azerbaijan. Hátíðin er ætluð þátttakendum á aldrinum 14-18 ára. Keppnisgreinar á hátíðinni eru frjálsíþróttir, körfuknattleikur, hjólreiðar, fimleikar, handbolti, júdó, sund, tennis og blak. Að þessu sinni verður einnig keppt í glímu. Keppendur koma frá 50 Evrópuþjóðum og eru þátttakendur um 3.600 talsins. Þann 27. júlí fer lokaathöfn hátíðarinnar fram.
Ekki harka af þér höfuðhögg!
Minsk 2019 - Valgarð fánaberi á lokahátíð
Lokahátíð Evrópuleikanna 2019 fór fram í gærkvöldi, 30. júní, á Dinamo leikvanginum. Dans- og söngatriði lokahátíðarinnar voru glæsileg og fór einnig mögnuð flugeldasýning fram. Valgarð Reinhardsson var fánaberi íslenska hópsins. Valgarð keppti einnig á Evrópuleikunum 2015, þar sem hann stóð sig best í stökki. Valgarð hefur átt góðu gengi að fagna síðastliðin ár. Hann náði þeim sögulega árangri að vera fyrsti íslenski fimleikamaðurinn til að komast í úrslit á stökki þegar hann var fimmti í undanúrslitunum á Evrópumótinu 2018, en alls kepptu 151 keppandi á mótinu. Hann er ríkjandi Íslandsmeistari í fjölþraut, bikarmeistari með félagsliðinu sínu Gerplu og vann til silfurverðlauna á tvíslá á Norðurlandamótinu sumarið 2018. Valgarð hefur mikinn metnað fyrir íþrótt sinni og er glæsileg fyrirmynd yngri iðkenda.