Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Vilhjálmur Einarsson

Vilhjálmur Einarsson fæddist 5. júní árið 1934 og er einn frægasti íþróttagarpur Íslandssögunnar. Hann hóf sinn keppnisferil á skólamótum á Eiðum um 1950. Er hann kom til Reykjavíkur hóf hann að æfa með ÍR og komu þá stökkhæfileikar hans í ljós. Fremur óvænt náði hann lágmarki á Ólympíuleikana 1956 í þrístökki. Vilhjálmur hreppti silfurverðlaun í þrístökki í Melbourne þann 27. nóvember árið 1956 með stökki upp á 16,26 metra. Stökkið var Ólympíumet í 2 klukkustundir en Da Silva frá Brasilíu bætti það með sigurstökki sínu. Vilhjálmur varð þar með fyrsti Íslendingurinn til þess að vinna til verðlauna á Ólympíuleikum og er sá eini hingað til sem hefur sett Ólympíumet.

Vilhjálmur var sigursæll íþróttamaður allan sinn feril. Hann var einn af fremstu þrístökkvurum heims árin 1956-1962 og einnig á Evrópumælikvarða í langstökki. Meðal afreka Vilhjálms voru 3. sæti á Evrópumeistaramóti árið 1958, 5. sæti á Ólympíuleikunum í Róm á Ítalíu árið 1960, með glæsilegu stökki upp á 16,37 metra og 6. sæti á Evrópumeistaramóti í Belgrad árið 1962, þar sem hann lauk ferli sínum með glæsibrag.

Vilhjálmur var fyrstur til að verða valinn Íþróttamaður ársins, þann 20. janúar árið 1956. Hann var valinn fjórum sinnum í viðbót, árin 1957, 1958, 1960 og 1961. Vilhjálmur hefur ætíð sýnt íþróttum og íþróttahreyfingunni á Íslandi mikinn áhuga og velvilja. Hann hefur verið mörgum íþróttamanninum fyrirmynd og blásið þjóðinni bjartsýni í brjóst með því að sýna og sanna að Ísland geti vel unnið til verðlauna á alþjóðlegum stórmótum.

Vilhjálmur Einarsson var sá fyrsti sem útnefndur var í Heiðurshöll ÍSÍ, þann 28. janúar 2012. Hér má sjá hans síðu í Heiðurshöll ÍSÍ.

Í febrúar 2012 kom Vilhjálmur fram í íþrótta- og mannlífsþætti RÚV, 360 gráðum, þar sem farið var yfir íþróttaferilinn með honum. Þáttinn má sjá hér.