Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

Nýr formaður Skíðasambands Íslands

04.06.2013Ársþing Skíðasambands Íslands var haldið á Akureyri dagana 24. og 25. maí sl. og sóttu það 40 manns víðsvegar af landinu. Á þinginu voru samþykkt ný lög sem skýra eiga starf sambandsins enn betur. Páll Grétarsson gaf ekki kost á sér áfram í formannsembættið og var nýr formaður sambandsins kjörinn Einar Þór Bjarnason.  Einar hefur lengi verið viðloðandi íþróttina bæði sem keppandi á yngri árum, þjálfari og nú hin síðari ár sem nefndarmaður í alpagreinanefnd sambandsins.
Á þinginu var mikið rætt um barna- og unglingastarf og möguleika á útbreiðslu íþróttarinnar. Brettamenn sátu nú þingið í fyrsta sinn en þeir voru teknir inn á síðasta ári og er mikils að vænta af þeim.  Þá var mikið rætt um skíðaiðkun almennings og nýjar greinar eins og fjallaskíðun og frjálsa (e. freestyle) skíðun en möguleikar almennings í skíðaíþróttum hefur aldrei verið fjölbreyttari.  Skíðasambandið hefur látið gera kennslumyndbönd um fyrstu skrefin á skíðum og bretti svo byrjendur geta undirbúið sig fyrir framan skjáinn áður en farið er í brekkurnar og fara þau í sýningu í haust.  Á næsta ári eru Vetrarólympíuleikar í Sochi í Rússlandi og er allt besta skíðafólk landsins á fullu að undirbúa sig fyrir þá.
Fulltrúi ÍSÍ á þinginu var Viðar Sigurjónsson, skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri.