Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
18

Umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga

20.11.2013

Umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga er opið.  Frestur til að skila inn umsóknum vegna keppnisferða á árinu 2013 rennur út á miðnætti föstudaginn 10. janúar 2014. Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sent inn umsóknir í sjóðinn.  Hægt er að fara inn á umsóknarsvæðið með því að smella hér eða smella á tengilinn „Ferðasjóður íþróttafélaga” hér hægra megin á heimasíðunni undir listanum „Gagnlegt”. 

Við stofnun umsóknar er send vefslóð á uppgefið netfang tengiliðar, sem nýtist sem lykill inn á viðkomandi umsókn þar til umsókn er send.  Umsækjendur eru hvattir til að vanda frágang umsókna til að auðvelda og einfalda úrvinnslu þeirra.  Listi yfir styrkhæf mót er að finna á umsóknarsvæðinu og þar er einnig að finna svör við algengum spurningum.

Vinsamlegast hafið samband við Höllu Kjartansdóttur skrifstofustjóra ÍSÍ í síma 514 4000 eða í gegnum netfangið halla@isi.is ef nánari upplýsinga er þörf eða ef þið hafið einhverjar ábendingar.