Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
12.11.2024 - 12.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
23

Heiðursveitingar á 75 ára afmælishófi TBR

04.12.2013Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur fagnar 75 ára afmæli í þessum mánuði og hélt í því tilefni afmælishóf laugardaginn 30. nóvember sl. í félagsaðstöðu Þróttar í Laugardal.  Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ sæmdi þar þrjá einstaklinga Gullmerki ÍSÍ fyrir góð störf í þágu badmintoníþróttarinnar, þau Unni Einarsdóttur, Jóhannes Helgason og Daníel Stefánsson.  Naut Lárus aðstoðar Sigríðar Jónsdóttur ritara ÍSÍ við afhendingu heiðursviðurkenninganna.  Á myndinni eru frá vinstri Daníel Stefánsson, Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ, Jóhannes Helgason, Unnur Einarsdóttir og Sigríður Jónsdóttir ritari ÍSÍ.