Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
12.11.2024 - 12.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
23

FSÍ með tvo fulltrúa í tækninefndum UEG

09.12.2013

Ársþing Fimleikasambands Evrópu (UEG) fór fram helgina 6.-7. desember í Portoroz í Slóveníu.  Á þinginu kynntu fulltrúar Fimleikasambands Íslands Evrópumótið í hópfimleikum sem fer fram í Reykjavík 17.-23. október 2014.  Fimleikasambandið var með tvo fulltrúa í framboði til tækninefnda og náðu þeir báðir kjöri.  Hlíf Þorgeirsdóttir var endurkjörin með glæsibrag sem meðlimur í sjö manna tækninefnd fimleika fyrir alla og Sólveig Jónsdóttir fékk frábæra kosningu í fimm manna tækninefnd í hópfimleikum.

Það er mikill heiður fyrir Fimleikasamband Íslands að eiga tvo fulltrúa í tækninefndum Fimleikasambands Evrópu og viðurkenning á því starfi sem innt er af hendi í fimleikahreyfingunni á Íslandi.