Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

ÍSÍ gefur öllum héraðsskjalasöfnum á Íslandi bókina Íþróttabókin, ÍSÍ – saga og samfélag í 100 ár

19.12.2013

Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ afhenti í dag fulltrúum héraðsskjalasafna á Íslandi eintak af afmælisbók ÍSÍ sem ber heitið „Íþróttabókin – ÍSÍ, saga og samfélag í 100 ár“.  ÍSÍ hefur ákveðið að gefa öllum héraðsskjalasöfnum á landinu eintak af bókinni, sem inniheldur mikinn fróðleik um íþróttir í íslensku samfélagi síðustu 100 árin.   Bókin var gefin út í tilefni af aldarafmæli sambandsins í fyrra.

Á afmælisárinu stóðu ÍSÍ og héraðsskjalasöfn á landinu fyrir átaki í að safna og skrá skjöl íþróttafélaga landsins.  Meginmarkmið átaksins var að safna og skrá eldri skjöl íþróttafélaga, s.s. fundargerðir, sendibréf, félagaskrár, bókhald og ljósmyndir. Góður árangur varð af átakinu en milli 150 og 200 hillumetrar af skjölum frá yfir 300 íþróttafélagum eru nú í vörslu héraðsskjalasafnanna.  Átakið var upphafið að góðri samvinnu íþróttafélaga og héraðsskjalasafna á landinu sem vonandi skilar áframhaldandi vitundarvakningu um mikilvægi þess að varðveita gögn og ljósmyndir úr starfi íþróttahreyfingarinnar.

Myndin er frá afhendingu fyrstu bókanna í dag og á henni eru (frá vinstri) Gerður Jóhannsdóttir frá Héraðsskjalasafni Akraness, Þorsteinn Tryggvi Másson frá Héraðsskjalasafni Árnesinga, Birna Mjöll Sigurðardóttir frá Héraðskjalasafni Mosfellsbæjar, Hrafn Sveinbjarnarson frá Héraðsskjalasafni Kópavogs, Svanhildur Bogadóttir frá Borgarskjalasafninu og Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ.

Ef nánari upplýsingar er þörf varðandi íþróttatengda skjalasöfnun héraðsskjalasafna þá hafið samband við Svanhildi Bogadóttur borgarskjalavörð, svanhildur.bogadottir@gmail.com - sími 664 7775. 

Tengiliður hjá ÍSÍ er Halla Kjartansdóttir skrifstofustjóri ÍSÍ, halla@isi.is – 514 4000.