Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands leitar að verkefnastjóra kynningarmála

22.02.2014

Um er að ræða fullt starf. Auk almennra kynningarmála mun verkefnastjórinn m.a. starfa að undirbúningi og framkvæmd kynningarmála í tengslum við Smáþjóðaleikana sem haldnir verða á Íslandi í júní 2015.

Helstu verkefni

  • Umsjón með kynningarmálum ÍSÍ
  • Umsjón með texta og efni á heimasíðum og samfélagsmiðlum ÍSÍ
  • Umsjón með útgáfu fréttabréfs ÍSÍ
  • Samræming útlits á útgefnu efni
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af kynningarmálum
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
  • Reynsla af störfum íþróttahreyfingarinnar kostur
  • Kunnátta í Norðurlandamáli kostur

Nánari upplýsingar veitir Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is

Umsóknarfrestur er til og með 3.3.2014