Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Ársþing KAÍ lokið

28.02.2014

27. Karateþing var haldið laugardaginn 22. febrúar í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.

Fjöldi fulltrúa frá karatefélögunum tók þátt í þingstörfum.  Ingi Þór Ágústsson úr framkvæmdasstjórn ÍSÍ, var fulltrúi ÍSÍ á þinginu.

Nokkrar tillögur lágu fyrir þinginu, t.d. um breytingar á mótahaldi næsta vetur, skiptingu á flokkum á Íslandsmótum og um gjaldgengi á mótum.

Töluverðar umræður urðu um tillögurnar og var þeim síðan vísað til nýrrar stjórnar til eftirfylgni.

Einnig var Afreksstefna KAÍ 2014 - 2016 lögð fyrir þingið og var hún samþykkt einróma.

Reinharð Reinharðsson var endurkjörinn sem formaður sambandsins.

Einn stjórnarmaður gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu og kom Anna Olsen, frá Aftureldinu, inn í aðalstjórn.