Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
26.03.2026 - 26.03.2026

Ársþing HSK 2026

Ársþing Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK)...
20

ÍSÍ í heimsókn hjá HSÞ

15.09.2014

Héraðssamband Þingeyinga (HSÞ) er víðfemt íþróttahérað með starfsemi allt frá Grenivík að Bakkafirði, eftir sameiningu íþróttahéraðanna í Norður- og Suður-Þingeyjarsýslu árið 2007.  Fundarstaður ÍSÍ og HSÞ í fundaherferð ÍSÍ var að Laugum í Reykjadal á laugardaginn var, en á leiðinni til Lauga var einnig farið í stutta vettvangsferð um Reykjahlíð þar sem mannvirki voru skoðuð. Á Laugum voru íþróttamannvirki skoðuð í blíðskaparveðri og í kjölfarið fundað með forsvarsmönnum íþróttahéraðsins.  

Jóhanna Kristjánsdóttir formaður HSÞ og Elín Sigurborg Harðardóttir framkvæmdastjóri héldu fróðlega kynningu á því helsta úr starfi sambandsins  og verkefnum sem framundan eru en sambandið fagnar 100 ára afmæli sínu á árinu.  Jóhanna afhenti forseta ÍSÍ boðsbréf á afmælishátíð sambandsins sem haldin verður 2. nóvember nk., einmitt á Laugum. Framkvæmdastjórn ÍSÍ og starfsfólk fékk einnig formlegt boð á hátíðina. 

ÍSÍ ferðalangar yfirgáfu Lauga sælir með frábærar móttökur og saddir eftir ljúffengt lambalæri að hætti Haraldar Bóassonar veitingamanns í Dalakofanum,

Myndir með frétt