Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.04.2025 - 26.04.2025

Ársþing ÍF 2025

Ársþing Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) verður...
27.04.2025 - 27.04.2025

Ársþing HHF 2025

Ársþing Héraðssambands Hrafna-Flóka (HHF)...
25

Íþróttasjóður - skilafrestur umsókna er til 1. október

23.09.2014

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði sem starfar samkvæmt lögum nr. 64/1998 og reglugerð nr. 803/2008.

Veita má framlög til eftirfarandi verkefna:

  • sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana
  • útbreiðslu- og fræðsluverkefna
  • íþróttarannsókna
  • verkefna samkvæmt 13. gr. Íþróttalaga.

Umsóknarfrestur rennur út 1. október 2014. Rannís hefur umsjón og eftirlit með Íþróttasjóði. Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á www.rannis.is. Umsóknum skal skila á rafrænu formi. Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson, andres.petursson@rannis.is, sími 515-5833.