Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.04.2025 - 26.04.2025

Ársþing ÍF 2025

Ársþing Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) verður...
27.04.2025 - 27.04.2025

Ársþing HHF 2025

Ársþing Héraðssambands Hrafna-Flóka (HHF)...
25

Úthlutun þjálfarastyrkja Verkefnasjóðs ÍSÍ

18.11.2014Stjórn Verkefnasjóðs ÍSÍ hefur tekið ákvörðun um hvaða þjálfarar hljóta þjálfarastyrk árið 2014. Um 40 þjálfarar sóttu um þá styrki sem voru í boði og komu umsóknir úr mörgum ólíkum greinum og má þar nefna golf, karate, íshokkí, krullu, snjóbretti, körfuknattleik, skylmingar, taekwondo, hestaíþróttir og fimleika og þá eru ekki allar greinar upptaldar. Alls var 10 styrkjum upp á samtals eina milljón króna úthlutað úr sjóðnum. Búið er að hafa samband við umsækjendur.