Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Knattspyrnudeild Skallagríms fyrirmyndardeild ÍSÍ

12.01.2015Knattspyrnudeild Skallagríms fékk afhenta endurnýjun viðurkenningar deildarinnar sem fyrirmyndardeild ÍSÍ á hófi UMSB í Borgarnesi laugardaginn 10. janúar sl. þar sem íþróttamaður ársins var kjörinn. Það var formaður deildarinnar, Ívar Örn Reynisson sem tók við viðurkenningunni úr hendi Viðars Sigurjónssonar skrifstofustjóra ÍSÍ á Akureyri. Íþróttamaður UMSB var kjörinn Helgi Guðjónsson. Helgi er mjög fjölhæfur íþróttamaður sem hefur lagt stund á  knattspyrnu, körfuknattleik og frjálsar íþróttir.  Á myndinni eru Viðar og Ívar Örn með fána fyrirmyndarfélaga ÍSÍ á milli sín.  Þess má geta að körfuknattleiksdeild Skallagríms vinnur nú hörðum höndum að því að fá viðurkenningu frá ÍSÍ sem fyrirmyndardeild.