Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Heiðurshöll ÍSÍ

16.02.2015Í tilefni 100 ára afmælis ÍSÍ samþykkti framkvæmdastjórn ÍSÍ að setja á stofn Heiðurshöll ÍSÍ.

Heiðurshöll ÍSÍ er óáþreifanleg höll afreksíþróttafólks og afreksþjálfara Íslands, í ætt við Hall of Fame á erlendri grundu. Framkvæmdastjórn ÍSÍ útnefnir einstaklinga í Heiðurshöll ÍSÍ eftir reglugerð þar að lútandi og er Heiðursráð ÍSÍ ráðgefandi aðili varðandi tilnefningar.

Með þessu verkefni vill ÍSÍ skapa vettvang til að setja á frekari stall okkar framúrskarandi fólk og skapa minningar í máli og myndum af þeirra helstu afrekum.

Hægt er að skoða Heiðurshöllina hér

Ásgeir Sigurvinsson og Pétur Guðmundsson voru útnefndir í Heiðurshöll ÍSÍ á athöfninni Íþróttamaður ársins 2014 í janúar sl.

Hér má sjá myndbönd sem RÚV setti saman fyrir athöfnina: