Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Góður rekstur hjá UMSB

13.03.2015

Laugardaginn 7. mars sl. fór ársþing UMSB fram í félagsheimilinu Logalandi. Ágæt mæting var á þingið og mættu 30 fulltrúar frá aðildarfélögum UMSB. 
Ekki urðu miklar breytingar á stjórn UMSB á þinginu, en Sigurður Guðmundsson sambandsstjóri var kjörinn áfram í eitt ár og aðrir í stjórn eru Kristín Gunnarsdóttir gjaldkeri, Sólrún Halla Bjarnadóttir ritari, Ásgeir Ásgeirsson varasambandsstjóri, Þórhildur María Kristinsdóttir meðstjórnandi, Jón Eiríkur Einarsson vara varasambandsstjóri, Aðalsteinn Símonarson vararitari, Þórdís Þórisdóttir varagjaldkeri og Anna Dís Þórarinsdóttir varameðstjórnandi.
Þingstörf gengu vel og voru fundarmenn almennt jákvæðir með uppgjör ársins 2014 og bjartsýnir á framhaldið. Ánægja var með góða fjárhagsstöðu UMSB, en unnið hefur verið markvisst í þeim málum undanfarin ár. Auk þess var ánægjulegt að sjá hversu vel hefur gengið að ná flestum þeim markmiðum sem sett voru við gerð stefnu UMSB sem samþykkt var á sambandsþingi 2013.  Samþykkt var að setja niður ný markmið fyrir UMSB á árinu 2015 og kynna á formannafundi í haust.

Gunnar Bragason gjaldkeri framkvæmdastjórnar ÍSÍ sótti þingið fyrir hönd ÍSÍ og ávarpaði hann þingfulltrúa við setningu þingsins.