Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
16

Málþing - Umfang og hagræn áhrif íþrótta

08.10.2015

Í dag, fimmtudaginn 8. október kl. 15:00-17:00, fer fram málþing um umfang og hagræn áhrif íþrótta í samfélaginu. Kynnt verður frumrannsókn á helstu þáttum íþrótta sem hafa efnahagsleg áhrif á samfélagið. Málþingið er haldið í samstarfi mennta- og menningarmálaráðuneytis, Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Háskóla Íslands.
Málþingið er ætlað öllum sem láta sig íþróttir og áhrif þeirra í samfélaginu varða.

Dagskrá:
15:00-15:10 – Opnun málþings
15:10-16:00 – Kynning áfangaskýrslu, Dr. Þórólfur Þórlindsson prófessor og Dr. Viðar Halldórsson lektor
16:00-16:10 – Kaffihlé
16:10-16:40 – Pallborðsumræður, Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra, Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ, Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri KSÍ, Dr. Þórólfur Þórlindsson, Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri og Dr. Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands
16:40-17:00 – Fyrirspurnir og umræður úr sal
Dagskrálok

Skráning: skraning@isi.is

Staðsetning:
Laugardalshöll, eystri inngangur

Fyrir nánari upplýsingar má hafa samband við sviðsstjóra Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ:
Ragnhildur Skúladóttir
ragnhildur@isi.is
514 4000 / 8634767