Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
25

Úthlutun úr Afrekskvennasjóði Íslandsbanka og ÍSÍ

03.12.2015

Sjóðsstjórn, skipuð þeim Helgu H. Magnúsdóttur, Elsu Nielsen og Kristínu Rós Hákonardóttur hefur farið yfir umsóknir vegna úthlutunar úr Afrekskvennasjóði Íslandsbanka og ÍSÍ fyrir árið 2015. Umsóknir um styrk voru að þessu sinni 39 talsins.

 

Framkvæmdastjórn ÍSÍ hefur samþykkt tillögu sjóðsstjórnar vegna úthlutunar ársins 2015. Úthlutunin nemur í heild sinni 3,5 milljónum króna. Styrkurinn skiptist eftirfarandi:

 

Sundsamband Íslands, 500.000. Okkar fremstu sundkonur hafa náð eftirtektarverðum árangri á síðustu misserum. Nú þegar hafa tvær sundkonur náð að tryggja sér þátttökurétt á Ólympíuleikunum í Ríó. Sundsamband Íslands hefur sett sér það markmið að endurtaka leikinn frá London 2012 og koma boðsundssveit kvenna í 4x100 metra fjórsundi á Ólympíuleikana í Ríó 2016. Til að það geti orðið að veruleika þarf að senda boðsundsveit til þátttöku á alþjóðlegum mótum og ná á þeim nógu góðum tíma til að tryggja sér þátttökurétt.

 

Fimleikasamband Íslands, 1.000.000. Fimleikar er sú íþrótt sem flestar konur stunda hér á landi. Mikill kostnaður fylgir þátttöku í landsliðsverkefnum á vegum FSÍ, sá kostnaður hefur að töluverðu leiti verið greiddur af iðkendum sjálfum. Síðastliðna mánuði hafa farið fram mörg umfangsmikil verkefni landsliða Fimleikasambandsins og ýmislegt er framundan. Fyrir skemmstu varð ljóst að íslensk kona mun næstkomandi vor í fyrsta sinn taka þátt í forkeppni Ólympíuleika. Líkur eru því töluverðar á að Ísland eigi í fyrsta sinn þátttakanda í áhaldafimleikum kvenna á Ólympíuleikunum í Ríó. Næsta haust fer fram Evrópumót í hópfimleikum þar sem landsliðskonurnar freista þess að endurheimt gullið frá 2012. Fimleikasamband Íslands fær styrk til að standa straum af landsliðsverkefnum kvenna.

 

Handknattleikssamband Íslands, 1.000.000. A landsliði kvenna í handknattleik hefur tekist í þrígang að tryggja sig inn í lokakeppni stórmóts. Landsliðið tók þátt í úrslitakeppni Evrópumótsins 2010 og 2012 auk Heimsmeistaramóts árið 2011. Næsta stórmót er Evrópumótið sem fram fer í Svíþjóð í lok árs 2016. Riðlakeppni er hafin og stendur hún fram á sumarið 2016. Ísland hefur leikið tvo leiki til þessa í undankeppninni en á fjóra leiki eftir. Ísland er í sterkum riðli ásamt Frakklandi, Þýskalandi og Sviss.

 

Knattspyrnusamband Íslands, 1.000.000. Á undanförnum árum hefur íslenska kvennalandsliðið verið framarlega í flokki á heimsvísu í knattspyrnu og meðal annars unnið sér þátttökurétt í lokakeppni EM 2009 og 2013. Nú er nýhafin undankeppni EM og verur úrslitakeppnin í Hollandi 2017 en þangað stefnir liðið. Baráttan er hörð enda eru aðrar þjóðir í Evrópu í mikilli sókn í kvennaknattspyrnu. Liðið hefur leikið þrjá leiki til þessa í keppninni og stendur ágætlega að vígi en fleiri leikir eru framundan allt fram á næsta haust þegar undankeppninni lýkur.