Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Hádegisfundur um hagræðingu úrslita í íþróttum

09.12.2015

Næstkomandi þriðjudag 15. desember mun ÍSÍ standa fyrir hádegisfundi um hagræðingu úrslita í íþróttum sem í dag er talin vera ein mesta ógn sem íþróttirnar standa andspænis á heimsvísu.  Hádegisfundurinn fer fram í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal og hefst kl.12 og stendur í um klukkustund.

ÍSÍ hefur ásamt systursamtökum sínum á Norðurlöndunum undirritað sameiginlega yfirlýsingu um baráttu gegn hagræðingu úrslita í íþróttum (match fixing). Þá hefur samningur Evrópuráðsins gegn hagræðingu úrslita í íþróttakeppnum verið undirritaður fyrir Íslands hönd. Einnig hefur mennta-og menningarmálaráðuneytið skipað vinnuhóp til að gera tillögur að vinnulagi og hvernig alþjóðasamningum verði best framfylgt.

Fyrirlesarar á hádegisfundinum verða þeir Pétur Hrafn Sigurðsson deildarstjóri hjá Íslenskri Getspá og Þorvaldur Ingimundarson heilindafulltrúi KSÍ, en þeir hafa kynnt sér þessi mál hérlendis og erlendis. Margs er að varast þegar kemur að hagræðingu úrslita og ekki hægt að fullyrða að það séu einhverjar íþróttagreinar undanskildar þessari vá. Nánari dagskrá 
má sjá hér 


Fundurinn verður tekinn upp og vistaður á heimasíðu ÍSÍ (vimeó). Skráning á hádegisfundinn er á skraning@isi.is og er þátttaka ókeypis.