Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
27

Nýtt Lífshlaupsár hefst á morgun!

02.02.2016

Nýtt Lífshlaupsár hefst á morgun, 3. febrúar. Við hvetjum alla landsmenn til að taka þátt í Lífshlaupinu, allt árið um kring, og skrá niður hreyfingu sína inn á nýjan vef Lífshlaupsins á www.lifshlaupid.is.

Vinnustaða-, grunn- og framhaldsskólakeppni Lífshlaupsins hefst einnig á morgun með setningarhátíð í Mýrarhúsaskóla og hvetjum við vinnustaði og skóla til að taka þátt í þessari skemmtilegu keppni og hefja með því nýjan, heilsueflandi lífsstíl með reglubundinni hreyfingu.

Nánari upplýsingar um Lífshlaupið er að finna á heimasíðu verkefnisins, www.lifshlaupid.is og á Fésbókarsíðu Lífshlaupsins.