Skipting ríkisstyrks til sérsambanda ÍSÍ 2016
02.02.2016
Framkvæmdastjórn ÍSÍ samþykkti á fundi 28. janúar sl. tillögur fjármálaráðs ÍSÍ um úthlutun ríkisstyrks til sérsambanda ÍSÍ sbr. hér neðar. Framlag á fjárlögum 2016 er óbreytt frá árinu 2015, alls 85 milljónir króna. Á árinu 2015 var stofnað eitt nýtt sérsamband, Hnefaleikasamband Íslands og sérsamböndin orðin því alls 31 talsins. Áhersla með styrknum er sem fyrr að vinna að því grundvallaráhersluatriði sem sett var í upphafi að hvert sérsamband fengi til framtíðar framlag til að standa undir nauðsynlegri þjónustu við sambandsaðila með rekstri eigin skrifstofu.
Styrkirnir eru greiddir út í þrennu lagi. Fyrsta greiðsla 30. mars n.k., önnur greiðsla 30. júlí n.k. og lokagreiðsla 30. nóvember. Lokagreiðslan er háð skilum á fjárhagslegu uppgjöri og greinagerð um nýtingu styrksins.

| Sérsamband | Upphæð |
| Akstursíþróttasamband Íslands | 2.600.000 |
| Badmintonsamband Íslands | 3.000.000 |
| Blaksamband Íslands | 3.000.000 |
| Borðtennissamband Íslands | 2.600.000 |
| Dansíþróttasamband Íslands | 3.000.000 |
| Fimleikasamband Íslands | 3.000.000 |
| Frjálsíþróttasamband Íslands | 3.000.000 |
| Glímusamband Íslands | 1.550.000 |
| Golfsamband Íslands | 3.500.000 |
| Handknattleikssamband Íslands | 3.300.000 |
| Hjólreiðasamband Íslands | 2.600.000 |
| Hnefaleikasamband Íslands | 1.550.000 |
| Íshokkísamband Íslands | 3.000.000 |
| Íþróttasamband fatlaðra | 1.550.000 |
| Júdósamband Íslands | 2.800.000 |
| Karatesamband Íslands | 2.800.000 |
| Keilusamband Íslands | 2.600.000 |
| Knattspyrnusamband Íslands | 3.500.000 |
| Kraftlyftingasamband Íslands | 2.600.000 |
| Körfuknattleikssamband Íslands | 3.300.000 |
| Landssamband hestamannafélaga | 3.300.000 |
| Lyftingasamband Íslands | 1.950.000 |
| Mótorhjóla- og snjósl.samband Íslands | 2.600.000 |
| Siglingasamband Íslands | 2.600.000 |
| Skautasamband Íslands | 2.600.000 |
| Skíðasamband Íslands | 3.000.000 |
| Skotíþróttasamband Íslands | 2.800.000 |
| Skylmingasamband Íslands | 2.600.000 |
| Sundsamband Íslands | 3.300.000 |
| Taekwondósamband Íslands | 2.800.000 |
| Tennissamband Íslands | 2.600.000 |
| Samtals | 85.000.000 |