Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
26

Júdódeild UMF Selfoss fyrirmyndardeild ÍSÍ

18.04.2016Júdódeild Ungmennafélags Selfoss fékk endurnýjun á viðurkenningu sem fyrirmyndardeild ÍSÍ á aðalfundi félagsins á Selfossi fimmtudaginn 14. apríl síðastliðinn.  Það var Hafsteinn Pálsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ og jafnframt formaður Almenningsíþróttasviðs sem afhenti deildinni viðurkenninguna í upphafi aðalfundarins.  Allar deildir félagsins eru fyrirmyndardeildir og hafa endurnýjað viðurkenningar sínar reglulega samkvæmt fjögurra ára reglu þar um.