Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

23.07.2023 - 29.07.2023

EYOF Maribor 2023

Sumarólympíuhátíð Evrópuæskunnar fer fram í...
26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
2

Ársþing UÍF

20.05.2016Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar hélt ársþing sitt að Íþróttamiðstöðinni Hóli á Siglufirði fimmtudaginn 19. maí síðastliðinn. 17 fulltrúar sóttu ársþingið að þessu sinni af 31 mögulegum og komu þeir frá 9 aðildarfélögum af 11.  Þingið gekk vel fyrir sig og var stýrt með miklum ágætum af Steinari Svavarssyni þingforseta.  Þrír aðilar gengu úr stjórn á þinginu, Guðný Helgadóttir formaður, Sigurpáll Gunnarsson varaformaður og Sigurður Gunnarsson gjaldkeri sambandsins.  Nýr formaður UÍF var kosinn Þórarinn Hannesson.  UÍF var rekið með umtalsverðum hagnaði á síðasta ári og fjárhagsáætlun sambandsins gerir ráð fyrir áframhaldandi hallalausum rekstri.  Fráfarandi stjórnarmönnum er þakkað fyrir áralöng og góð störf í þágu íþrótta og nýrri stjórn óskað velfarnaðar.  Það var Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri sem var fulltrúi ÍSÍ á þinginu.  Á myndinni eru frá vinstri þau Þórarinn Hannesson nýr formaður UÍF, Guðný Helgadóttir fyrrverandi formaður, Sigurður Gunnarsson fyrrverandi gjaldkeri og Sigurpáll Gunnarsson fyrrverandi varaformaður.