Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
27

Námskeið í fararstjórn

24.05.2016
Vegna mikillar eftirspurnar mun ÍSÍ bjóða upp á annað námskeið fyrir fararstjóra í íþróttaferðum í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, miðvikudaginn 25. maí. Þátttaka er öllum heimil án endurgjalds á meðan húsrúm leyfir en námskeiðið mun fara fram á þriðjuhæð Íþróttamiðstöðvarinnar í E - sal, kl. 17:00-19:15. Gústaf Adólf Hjaltason verður fyrirlesari á námskeiðinu en hann hefur margra ára reynslu úr íþróttastarfinu og sat meðal annars í framkvæmdarstjórn ÍSÍ.
 
Farið verður yfir þá fjölmörgu þætti sem hafa þarf í huga varðandi hlutverk fararstjóra í keppnis- og æfingaferðum á vegum íþróttahreyfingarinnar, bæði innanlands og erlendis. Þessi námskeið hafa verið mjög vinsæl og því um að gera að skrá sig í tíma. Allir þátttakendur fá skjal frá ÍSÍ með staðfestingu á þátttöku að námskeiðinu loknu. Skráning fer fram hér.