Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
26.03.2026 - 26.03.2026

Ársþing HSK 2026

Ársþing Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK)...
22

Jafnrétti til sigurs án hinsegin fordóma

25.05.2016Í dag fór fram hádegisfundur um hinsegin fordóma en fyrirlesari var María Helga Guðmundsdóttir landsliðskona í karate og jafningjafræðari hjá Samtökunum 78. Hádegisfundurinn var samvinnuverkefni KSÍ, ÍSÍ og Samtakanna 78. María Helga fjallaði um stöðu hinsegin fólks í íþróttum, um kynjakerfið og hvernig það hefur áhrif á íþróttamenningu og þýðingu ýmissa hugtaka eins og intersex og kynsegin. Í fyrirlestrinum talaði María Helga um birtingaform fordóma á grundvelli kynhneigðar, kynvitundar og kyneinkenna í íþróttum. Í lok fyrirlestursins ræddi hún um hvernig þjálfari, liðsfélagi, stjórnarmaður eða foreldri geti stutt hinsegin fólk í íþróttum og stuðlað þannig að opnu og fordómalausu umhverfi.

Fundurinn var tekinn upp og verður gerður aðgengilegur á heimasíðu ÍSÍ að nokkrum dögum liðnum.


Myndir með frétt