Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
26

Ólympíustöðin hefur göngu sína

15.08.2016

Alþjóðaólympíunefndin tilkynnti þann 27. júlí 2016 að ný stöð, sérstök Ólympíustöð, myndi hefja göngu sína þann 21. ágúst 2016. Þann dag fer lokahátíð Ólympíuleikanna í Ríó fram. Thomas Bach, forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar, sagði við tilefnið að tilvist Ólympíustöðvarinnar væri upphafið á spennandi nýju ferðalagi sem myndi tengja áhorfendur heimshorna á milli við Ólympíuhreyfinguna. Hann fagnaði því að aðdáendur geti nú fylgst með íþróttum, íþróttafólki og sögunum á bakvið Ólympíuleikana allt árið um kring.

Ólympíustöðin er ókeypis vettvangur sem mun sýna beint frá íþróttaviðburðum, vera með nýjustu fréttir og bjóða upp á útsendingar tileinkaða íþróttum og íþróttamönnum allt árið um kring. Stöðin mun leggja áherslu á afreksíþróttamenn og þeirra leið að meiri árangri. Að auki er hægt að skrá sig sem notanda að Ólympíustöðinni. Því fylgir persónulegri reynsla, þar sem skráðir notendur geta fylgst með uppáhalds íþróttamönnum sínum, liðum, íþróttum og löndum. Umhverfið býður einnig upp á að deila efni á samfélagsmiðla og hvetur notendur til að hafa aukin samskipti við Ólympíuhreyfinguna. Á Ólympíustöðinni munu aðdáendur geta upplifað kraft íþróttanna og Ólympíuhreyfingarinnar allt árið, hvar sem er og hvenær sem er.

Hægt verður að ná sér í Ólympíustöðvar-smáforrit í símann, en einnig verður hægt að horfa á stöðina á olympicchannel.com. Íþróttamenn og aðdáendur geta einnig fylgt Ólympíustöðinni á samfélagsmiðlasíðum hennar, Facebook, Instagram, Twitter og YouTube.