Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Göngum í skólann 2016

31.08.2016Verkefninu Göngum í skólann verður hleypt af stokkunum í tíunda sinn miðvikudaginn 7. september næstkomandi og lýkur svo formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 5. október. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.

Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskautar og hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.

Á síðasta ári tóku milljónir barna í yfir 40 löndum víðsvegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi voru 76 skólar skráðir til leiks og hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt gegnum árin, en fyrsta árið voru þátttökuskólar 26.

Þeir skólar sem ætla að taka þátt í Göngum í skólann fara á vefsíðuna www.gongumiskolann.is og í "Skráning".

Að Göngum í skólann verkefninu standa eftirtaldir aðilar: Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Samgöngustofa, Embætti Landlæknis, Ríkislögreglustjóri, Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Heimili og skóli og Slysavarnarfélagið Landsbjörg.