Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
18

Ólympískir viðburðir 2017-2020

17.01.2017

Ólympískir viðburðir 2017-2020 er fjórblöðungur sem ÍSÍ gaf út nýverið. Þar má sjá verkefni Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ næstu 4 árin. Fjórblöðunginn má sjá hér neðst í fréttinni.

Markmið og verkefni Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ er meðal annars að hafa yfirumsjón með öllu sem lýtur að afrekssmálum ÍSÍ og/eða einstakra sérsambanda og að sjá um undirbúning og mál er varða Ólympíuleika, Ólympíuleika ungmenna, Smáþjóðaleika, Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar og önnur þau alþjóðamót sem ÍSÍ tekur þátt í.

Sameiginlegt markmið íþróttahreyfingarinnar er að Íslendingar eigi hverju sinni afreksmenn og afreksflokka í íþróttum er skipi sér á bekk með þeim bestu í heiminum og að stöðugt hækki afreksstig íslenskra íþrótta. Í því felst að efla hæfni og færni þeirra sem að afreksíþróttastarfinu koma og sem með afreksíþróttamanninum vinna, tryggja möguleika afreksíþróttamanna framtíðarinnar til að ná settu marki, stuðla að bættum framfærsluaðstæðum íþróttamannsins og auka íslenska þjálfunarkunnáttu.

Leiðarljós afreksstefnu ÍSÍ er að bæta það umhverfi sem afreksíþróttir búa við. Afreksstefnu ÍSÍ má sjá hér.

 

Ólympíuleikar ungmenna

Ólympíuleikar ungmenna (The Youth Olympic Games, YOG) eru ætlaðir fyrir ungt afreksfólk í íþróttum á aldrinum 14 til 18 ára. Keppt er í mörgum greinum og skiptast leikarnir í sumarleika og vetrarleika eins og Ólympíuleikar fullorðinna. Fyrstu sumarleikarnir fóru fram í ágúst 2010 í Singapore og fyrstu vetrarleikarnir fóru fram í janúar 2012 í Austurríki. Ísland hefur átt þátttakendur á leikunum frá upphafi.

Næstu sumarleikar munu fara fram í Buenos Aires í Argentínu 2018 og næstu vetrarleikar í Lausanne í Sviss 2020. 

Nánar um Ólympíuleika ungmenna má sjá hér.

Evrópuleikar

Evrópuleikarnir 2019 munu fara fram í Minsk, höfuðborg Hvíta-Rússlands. Leikarnir munu þá fara fram í annað sinn, en fyrstu Evrópuleikarnir fóru fram í Bakú í Azerbaijan í júní árið 2015. Leikarnir eru haldnir á vegum Evrópusambands ólympíunefnda (EOC).

Nánar um Evrópuleika má sjá hér.

 

Ólympíuleikar

Ísland tók fyrst þátt á Ólympíuleikunum í London 1908. Fjórum sinnum hafa Íslendingar staðið á verðlaunapalli á Ólympíuleikum. Fyrstur Íslendinga til að vinna til verðlauna á Ólympíuleikum var Vilhjálmur Einarsson silfurverðlaunahafi í þrístökki í Melbourne árið 1956. Á leikunum í Los Angeles árið 1984 vann Bjarni Friðriksson bronsverðlaun í -95kg. flokki í júdó. Fyrsta íslenska konan til að vinna til verðlauna var Vala Flosadóttir. Vala hlaut bronsverðlaun í stangarstökki á Ólympíuleikunum í Sydney 2000. Ísland hlaut síðan silfurverðlaun í handknattleik karla á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008.

Næstu Vetrarólympíuleikar fara fram í PyeongChang í Suður-Kóreu árið 2018. Næstu Sumarólympíuleikar fara fram í Tókýó í Japan árið 2020. 

Nánar um Ólympíuleika má sjá hér.

 

Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar

Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar fer fram annað hvert ár. Næsta Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar verður haldin í Erzurum í Tyrklandi í febrúar 2017. Tveimur árum seinna fer hátíðin fram í Sarajevó í Bosníu og Hersegóvínu árið 2019. Sumarólympíuhátíð Evrópuæskunnar verður haldin í Györ í Ungverjalandi í júlí 2017 og síðan í Minsk í Hvíta-Rússlandi árið 2019. 

Nánar um Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar má sjá hér.

 

Smáþjóðaleikar

Næstu Smáþjóðaleikar fara fram í ár, 2017, í San Marínó.

Hugmyndina um íþróttakeppni smáþjóða Evrópu má rekja aftur til ársins 1981. Það var útbreidd skoðun að íþróttakeppni þar sem smáþjóðir öttu kappi saman gæti orðið til þess að efla anda og hugsjón ólympíuhreyfingarinnar og treysta jafnframt vináttubönd þjóðanna. Þátttökurétt eiga þjóðir með íbúatölu undir einni milljón. Þessar þjóðir eru: Andorra, Ísland, Kýpur, Liechtenstein, Lúxemborg, Malta, Mónakó og San Marínó. Að beiðni forseta IOC var Albaníu upphaflega boðið að vera með á leikunum þrátt fyrir að íbúatala hennar væri yfir einni milljón. Hún þáði ekki boðið, en hinar þjóðirnar hafa verið með allt frá byrjun. 

Smáþjóðaleikarnir fara fram á tveggja ára fresti í einu af löndunum átta. Þeir voru fyrst haldnir í San Marínó árið 1985, en síðan hafa þeir verið haldnir í Mónakó (1987), Kýpur (1989), Andorra (1991), Möltu (1993), Lúxemborg (1995), Íslandi (1997), Liechtenstein (1999), San Marínó (2001), Möltu (2003), Andorra (2005), Mónakó (2007), Kýpur (2009), Liechtenstein (2011), Lúxemborg (2013), Íslandi (2015) og þeir 17. verða haldnir í San Marínó árið 2017.

Á leikunum í Liechtenstein árið 2011 tók Svartfjallaland þátt í fyrsta sinn og eru því þátttökuþjóðir orðnar níu talsins. Á sömu leikum var ákveðið að hefja þriðju umferð leikanna árið 2017.

Íslensku keppendurnir hafa staðið sig mjög vel á Smáþjóðaleikum og eiga flest verðlaun.

Nánar um Smáþjóðaleikana má sjá hér.