Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Reinharð sæmdur Gullmerki ÍSÍ

27.02.2017

Karateþing var haldið laugardaginn 25. febrúar í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Um 30 fulltrúar karatefélaganna á landinu tóku þátt í þingstörfunum. Hafsteinn Pálsson, úr framkvæmdastjórn ÍSÍ, sótti þingið af hálfu ÍSÍ.
Reinharð Reinharðsson, formaður KAÍ til 11 ára, var sæmdur Gullmerki ÍSÍ af Hafsteini Pálssyni, fyrir stjórnunarstörf í karatehreyfingunni. 

Nokkur mál lágu fyrir þinginu, Afreksstefna KAÍ fyrir 2017 – 2019, fjárhagsáætlun 2017 auk tillagna um greiðslur fyrir dómgæslu, fjölda dómara á mótum, aldur keppenda á mótum og skráningu og viktun keppenda fyrir mót. Nokkrar umræður urðu um Afreksstefnu KAÍ og tók hún lítilsháttar breytingum í umfjöllun allsherjarnefndar. Hún var síðan samþykkt með áorðnum breytingum. 
Miklar umræður urðu um aðar tillögur og voru samþykktar, eftir umræður og nokkrar breytingar í nefndum, tillögur um greiðslu fyrir dómgæslu og um skráningu og vigtun keppenda. 
Tillaga um fjölgun dómara frá félögunum var felld og tillaga um aldur keppenda á mótum tók gagngerum breytingum í nefnd og var hún samþykkt með áorðnum breytingum. Mun því í framtíðinni verða miðað við fæðingardag en ekki fæðingarár keppenda á mótum á vegum KAÍ og mótaraðir á vegum sambandsins munu miðast við almanaksárið. 
Reinharð Reinharðsson var endurkjörinn formaður sambandsins og tveir nýir stjórnarmenn komu inn í aðalstjórn, Arnar Jónsson og Willem C. Verheul. Einn nýr stjórnarmaður kom inn í varastjórn, Guðmundur Ásmundsson.